Beint í efni

Verkstæði

Viðgerðir og lagfæringar

Í verslun okkar að Snorrabraut 56 má finna viðgerðar- og breytingar verkstæði ásamt því sem við rekum litla saumastofu. Hafir þú keypt vöru hjá okkur er þér velkomið að koma með hana í breytingar eða viðgerðir. Við biðjum þig þó ávallt að hafa samband í síma 588-0488 áður en þú kemur og lýsa erindinu. Það fer eftir eðli verks hvort þú þurfir að hitta á feldskera í versluninni og því er gott að bóka tíma fyrirfram.

Viðgerðir

Við bjóðum upp á viðgerðir á vörum frá okkur til að lengja líftíma þeirra og tryggja gott viðhald.Ef um er að ræða eldri vöru sem ekki var keypt hjá okkur, biðjum við þig vinsamlegast að hafa samband fyrirfram við feldskera í síma 588-0488.

Úlpuloð

Ef loðið er orðið lúið hettunni þinni eða þig hreinlega langar að bæta nýju loði við hettuna þína þá skaltu fylgja eftirfarandi skrefum:

Loðið er yfirleitt fest á renning sem er annaðhvort renndur eða hnepptur af hettunni. (Ef þetta á ekki við, hafðu samband í síma 588-0488.)
Þú kemur með renninginn til okkar að Snorrabraut 56 og velur nýtt loð.
Við saumum loðið á renninginn. Afgreiðslutími getur verið allt að tvær vikur, en það fer eftir álagi.
Þú færð tilkynningu þegar verkið er tilbúið og sækir þá renninginn.

Algengar spurningar

Hvað kostar nýtt loð á hettu?
Hversu langan tíma tekur að setja nýtt loð á hettu?
Er hægt að gera við gat á loðpels?
Kaupið þið gamla pelsa?
Gerið þið við fóður í pelsum?
Hversu langan tíma taka almennar viðgerðir?
Hvað kosta viðgerðir?
Hve oft þarf að spreyja mokkakápu með vatnsvörn?
Er hægt að senda úlpuloð til okkar í viðgerð ef maður býr úti á landi?
Er hægt að sérpanta pelsa?