Sagan okkar
Feldur Verkstæði
Feldur Verkstæði er íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun og sölu á hágæða vörum úr skinni og feld. Versluninn er staðsett á Snorrabraut 56, þar sem við bjóðum ykkur velkominn inn í hlýlegan og grípandi heim Felds.
Þetta hófst allt með handverkinu.
Heiðar Sigurðsson annar stofnandi Felds var aðeins 17 ára gamall þegar hann nam hjá Steinari Júl feldskera. Um tvítugt flutti hann svo til Svíþjóðar og lærði þar feldskurð, pelsahönnun og tók námskeið í klæðskurði. Samhliða náminu starfaði Heiðar hjá nokkrum feldskerum í Trånos og fékk þar dýrmæta reynslu. Þegar heim var komið fór hann meðal annars að hanna mokka kápur fyrir Skinnadeilds Sambandsins, Heklu. Auk þess sem að hann fór að sauma sjálfur úr mokka og minkaskinni og selja undir nafni Safalans og gerði um hríð. Uppúr 1990 lagðist skinnaiðnaður og feldskurður nánast allur af hér á landi og Heiðar sneri sér einnig að öðru. Það er svo árið 2006 sem hjónin Heiðar og Kristín sameina krafta sína og endurvekja Safalann, nú í kjallaranum heima hjá sér. Áherslan færist frá innlendri framleiðslu og þau fara að mynda sterk tengsl við framleiðendur um Evrópu. Þau láta framleiða fyrir ýmsar fallegar hönnunar vörur. Þar lagðist fjölskyldan á eitt og systkinin kepptust við að vera fyrri til að klára hin ýmsu verkefni. Fyrirtækið jók umsvif sín hægt en örugglega, brátt var Heiðar einnig aftur farin að snúa sér að viðgerðum á pelsum og öðru skinni, hann fékk þá til liðs við sig Ásu, sem hafði unnið með honum á saumastofu Steinars Júl þegar þau voru ung. Ása er ennþá í dag mikilvægur hluti af fyrirtækinu. Heiðar tók einnig að sér ýmsan sérsaum, bæði fyrir leikhús og bíómyndir, brúðkaup og fleira. Safalinn varð svo að Feldi Verkstæði. Fyrirtækið fluttist úr kjallaranum í lager á Sundabraut og síðar var verslunin opnuð á Snorrabraut 56.
Við höfum ávallt lagt upp með að vanda til verka. Við erum ekki árstíðabundin eins og svo algengt er í tískuiðnaðinum og við getum framleitt eftir eftirspurn. Við erum ekki með reglulegar útsölur til þess að rýma fyrir nýjum vörum heldur leyfum við vörunum okkar að lifa til lengri tíma. Þannig bjóðum við tímalausa hönnun þar sem við leyfum efninu að njóta sín. Við leggjum áherslu á að upplýsa viðskiptavini um viðeigandi viðhald og göngum þannig úr skugga um að varan endist sem lengst.
Þegar Feldur Verkstæði opnaði loks á Snorrabraut 56 gafst færi á að skapa heiminn í kringum vörurnar sem fengu nú að njóta sín eins og þeim hafði verið ætlað. Verslunin hefur haldið sínum sjarma síðan árið 2014 og verið lítið breytt síðan þá. Andrúmsloftið á Snorrabrautinni kjarnast í hlýleika og góðri nærveru, okkur finnst fátt betra en að taka á móti viðskiptavinum og aðstoða þá við að velja sér vöru sem kemur til með að hlýja um ókomna tíð. Engin tvö eintök eru nákvæmlega eins þar sem notast er við náttúrulegt hráefni sem allt er ófullkomið á sinn fullkomna hátt. Hvort sem verið er að velja lúffur eða pelsa, er skemmtilegt að skoða hvernig hvert eintak er einstakt. Við hvetjum þig því til að koma til okkar, kynnast vörunni og finna það eintak sem ætlað er þér.
Verkstæðið er einnig staðsett á Snorrabrautinni. Okkur þykir svo gaman að taka á móti viðskiptavinum með margra ára gamla pelsa sem oftar en ekki fylgir mikil saga. Heiðar tekur enn að sér að breyta þeim þannig að þeir endist í miklu fleiri ár. Einnig reynum við eftir fremsta magni að taka við og lagfæra gamlar vörur frá okkur. Með því viljum undirstrika mikilvægi þess að fara vel með það sem við eigum.
Af hverju veljum við að nota leður og skinn?
Sútun og vinnsla úr skinnum er aldagömul hefð hér á landi en fáir sérhæfa sig í greininni í dag. Við höfum frá upphafi lagt áherslu á að huga vandlega að framleiðslu ferlinu. Við vöndum ávallt nýtingu á hráefninu og gerum það sem við getum til að nýta það sem best. Skilar það sér í loka útkomunni, sem ræðst gjarnan af formi efniviðsins. Með einstökum línum og sérhönnuðum sniðum. Þar sem loðskinn er dýrmætt hráefni sem kemur frá lifandi verum berum við virðingu fyrir hverjum og einum skinn bút og pössum að finna honum farveg. Við verslum til að mynda við framleiðslur sem sérhæfa sig í framleiðslu á bútaskinns plötum, þar eru minnstu bútar verslaðir með þeim tilgangi að vera saumaðir saman og nýttir til fulls. Efniviðnum er aldrei hent, heldur fá minnstu bútar nýjan tilgang, búa til nýtt mynstur. Einnig framleiðum við vörur fyrir alla aldurshópa, þannig finnum við afgangi frá stærri vörum farveg í t.d. barnavörum.